Leita í fréttum mbl.is

Niðurstöður?

Meina þeir ekki síðustu ,,getgátur".

Geimurinn verður alltaf ráðgáta fyrir okkur og menn eru að geta sér til um ýmislegt. Nýjar ,,niðurstöður" segja okkur ekkert nema það að vísindamenn vita í raun ekkert fyrir víst... þetta eru allt getgátur... sem margir taka síðan sem heilögum sannleika.
mbl.is Vetrarbrautin sögð stærri en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"... þetta eru allt getgátur... sem margir taka síðan sem heilögum sannleika"

Bíddu, ertu ekki að tala um trúarbrögð þarna? Niðurstöður vísindamanna eru studdar sönnunargögnum. Enginn vísindamaður tekur þeim sem heilögum sannleik.

Kári (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 23:19

2 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll Kári,
Nei ég er ekki að tala um trúarbrögð þarna...
Ég er að tala um að ,,margir" þ.e. hinn venjulegi maður taki því sem vísindamenn varpa fram ,,sem heilögum sannleik" en í raun séu þetta ,,getgátur"... því eins og Gísli segir fyrir ofan, þá er stöðugt að bætast nýtt við og við vitum að ,,niðurstöður" breytast jafnvel bara við að fá ný rannsóknartæki. Þess vegna er ekki einu sinni hægt að tala um ,,sönnunargögn" 

Bryndís Svavarsdóttir, 9.1.2009 kl. 00:48

3 identicon

Nei, þetta eru ekki getgátur. Þetta eru svörin sem þeir hafa núna með þeirri tækni sem er til nú til dags. Með betri tækni þróast svörin. Ef þú vilt ekki taka því sem gildi að þetta er það sem við vitum í dag og við vitum meira á morgun, þá er eitthvað að þér. Þarftu að fá róttæk svör við öllu? Er ekki lífið nógu gott til að þú þurfir að velta þér uppúr svona vitleysu?

Gjarnan (IP-tala skráð) 10.1.2009 kl. 23:38

4 identicon

Núna ert þú að gefa í skyn að þetta sé skrifað af vísindafólkinu sem er setja fram þessar kenningar þegar í raun það sem þú ert að lesa er eitthvað sem einvher í þessum miðli var að þýða af frétt frá öðrum miðli. Það eru semsagt allavegana 2 miðlar á milli þín og þess sem kom með þessa kenningu, hvergi er sagt að viðkomandi haldi því fram að þetta sé sannleikur og einnig ef þú lest nánar fréttina (sem er hugsanlega ekki rétt þýdd samkvæmt því sem ég las frá öðrum miðli) er tekið fram að talið sé..

Það sem þú ert að setja út á hér er í raun ekkert annað en framsetning á þessari frétt þar sem ekkert er vísað í þá skýrslu eða viðtal þar sem þessar upplýsingar eru fengnar.

Maður þarf að passa sig á að gleypa ekki allt sem kemur fram í miðlum.

Halldór Björgvin Jóhannsson (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 13:52

5 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sælir,
,,Geimurinn verður alltaf ráðgáta fyrir okkur og menn eru að geta sér til um ýmislegt. Nýjar ,,niðurstöður" segja okkur ekkert nema það að vísindamenn vita í raun ekkert fyrir víst... þetta eru allt getgátur... sem margir taka síðan sem heilögum sannleika."
Oft kemur mikill hiti í menn af litlum neista... þetta var það sem ég skrifaði við greinina... ósköp saklaust, að svokallaðar niðurstöður sem vísindamenn greina frá, væri aðeins hægt að kalla getgátur.
Ég var ekki að krefjast róttækra svara... og heldur ekki að segja að einhver í greininni héldi því fram að þetta væri sannleikur.
Ég skrifaði að ,,margir" og í athugasemd útskýri ég, að ég er að meina að ,,margir" þ.e. hinn venjulegi maður taki niðurstöðunum sem varpað er fram, sem heilögum sannleika.
Í raun og veru skiptir ekki máli fyrir athugasemd mína við fréttina, hvort fréttin var rétt þýdd eða höfð eftir... það er ekki það sem ég var að blogga um.
Það eina sem skiptir máli var að það voru nýjar niðurstöður... sem ég segi að bendi til þess að vísindamenn séu í raun ekki vissir um neitt... allt bendir kannski til þeirrar niðurstöðu sem þeir komust að, en sú niðurstaða gæti breyst með öðrum eða betri mælitækjum.

Bryndís Svavarsdóttir, 21.1.2009 kl. 03:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband