Leita í fréttum mbl.is

Allra hagur...

Bráðnauðsynlegt að reka á eftir fólki svo það geti bjargað sér sjálft...
Sem krakki man ég eftir sjoppueiganda og sundlaugaverði sem voru af erlendum uppruna. Sjoppueigandinn talaði slagfæra íslensku... varð kanski að gera það svo það væri hægt að versla við hann en hinn danski sundlaugavörður var búinn að búa til sitt eigið tungumál, sem ég held að hvorki Danir eða Íslendingar hefðu skilið þó lífið lægi við...

Tengdamamma mágkonu minnar reyndi hins vegar aldrei að læra íslenskuna, þó hún væri búsett hér í fjölda ára... svo það er nauðsynlegt að ýta við fólki. Það er nauðsynlegt að setja kröfur, því eftir allt saman er auðveldara fyrir fólkið sjálft að fóta sig hér, ef það lærir málið. 
mbl.is Íslenskupróf skilyrði fyrir ríkisborgararétti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að það væri nú ágætis byrjuna að ýta við þér. Ég sé að notar orðið ,,slagfær". Hvaða orðskrípi er það nú? Getur verið að þú sért að meina íslenska orðið slarkfær? Getur verið að þú þurfi að taka til í eigin ranni áður en þú byrjir að dæma aðra?

Kristinn (IP-tala skráð) 17.12.2008 kl. 22:35

2 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Þakka þér fyrir Kristinn,
Já, það er rétt hjá þér, þetta átti að vera ,,slarkfær"
en svo þú sjáir nú að öllum getur orðið á....
þá er aukastafur hjá þér í einu orði (byrjuna) í athugasemd þinni og vantar annan í enda annars orðs (þurfi)...
Síðan vantar 2.persónufornafn í setningu nr. 2 hjá þér (þú)... og ég myndi segja að það væri beygingarvilla í síðustu setningunni... ætti að standa ,,byrjar" í stað ,,byrjir"
Íslenskupróf fyrir útlendinga ætti ekki að vera í þessari smámunasemi, það ætti að nægja eins og fréttatilkynningin segir, að fólk geti skilið nóg til að bjarga sér í málinu... og ég hélt ég væri ekki að dæma neinn, aðeins benda á að það væri allra hagur ef fólk sem ætlar að setjast hér að, reynir að læra íslensku

Bryndís Svavarsdóttir, 18.12.2008 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband