Leita í fréttum mbl.is

Athyglissýki fárra einstaklinga?

Myndi þetta fólk mæta ef fréttamenn færðu ekki fréttir af þessum óeirðamótmælum? Er þetta ekki að nokkru leyti athyglissýki. Vissulega hefur fólk leyfi til að mótmæla... en hvað á maður að kalla þetta þegar fólk fer með sömu ræðuna laugardag eftir laugardag.

það var talið að 7þús. manns hafi mætt... pælið í því, þetta eru 2,3% af þjóðinni... en þetta fólk telur sig tala fyrir meirihluta þjóðarinnar og segir stjórnmálamennina hafa misst umboð sitt, sem þó voru kosnir til að sinna þessu starfi... en hefur þetta fólk eitthvað umboð? Ég bara spyr...


mbl.is Fanganum sleppt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Thee

þegi þú

Thee, 22.11.2008 kl. 18:54

2 Smámynd: Rýnir

Sæl bæði,

áhugaverð færsla hjá þér Bryndís.

Thee: Mjög málefnalegt innlegg hjá þér... Er þetta kannski ráðið sem þú leggur til við þá sem eru ekki sammála almennt, eins og t.d. að mótmælendur ættu að gera?

Góðar kveðjur,

Rýnir, 22.11.2008 kl. 19:29

3 identicon

Samkvæmt þínum rökum ættu þá hin 97,7% þjóðarinnar að koma saman til að mótmæla mótmælunum. Ég hef ekki séð það gerast.

Hvort væri Jesúm á mótmælum eða að tala niður til fólksins á blogginu?

Elvar Geir Sævarsson (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 19:33

4 identicon

Og þvílíka gungan sem þessi handtekni mótmælandi er! Þorir ekki að láta sjá framan í sig. Það er ég viss um  að mamma hans hefur beilað hann út

soffía (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 19:46

5 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Friðsamleg mótmæli eru bara af hinu góða, við eigum alls ekki að samþykkja yfirgang.  Spurningin er hins vegar... eiga ekki friðsamlegu mótmælin að ,,eiga athyglina" í fjölmiðlum en ekki óeirðaseggirnir? 
Svo er það annað, að í ræðum sumra, sem segjast mótmæla friðsamlega, er að finna vissan æsingatón og þeir eru farnir að gefa yfirlýsingar eins og þeir hafi umboð þjóðarinnar.
97,7% þjóðarinnar mætir ekki á Austurvöll, margir þeirra geta verið sammála einhverju sem þar fer fram, því við höfum öll skoðanir á málunum - aðrir eru ósammála þeirra kröfum.
Jesús hvatti fólk til að standa gegn óréttlæti með aðgerðum án ofbeldis...
Matt.5:38 Þér hafið heyrt, að sagt var: „Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn.“ 39En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim, sem gerir yður mein.  
Gríska orðið... antistēnai... sem er þýtt ,,rísið ekki gegn” hefur í grískri þýðingu GT (Septuagintu) frá 2 öld f.Kr. oftast merkinguna... að verjast ofbeldi og vopnaskaki.
Jesús var ekki að hvetja menn til að sitja aðgerðarlausir þegar einhver sýndi þeim yfirgang - hann myndi heldur ekki kasta eggjum. 
Ef við myndum þýða vers 39 eftir sömu forsendum og í gömlu grísku þýðingunni... myndi þýðingin vera... “Rísið ekki með ofbeldi gegn þeim, sem gerir yður mein.“ Svo sannarlega önnur merking.
Ég taldi mig alls ekki tala niður til þeirra sem mótmæla friðsamlega... og vona að enginn taki því þannig.

Bryndís Svavarsdóttir, 22.11.2008 kl. 22:28

6 identicon

að kalla fólk athyglissjúkt er að tala niður til fólks. Það fer greinilega ekki mikið fyrir kristilegu umburðarlyndi á þessum bæ.

Elvar Geir Sævarsson (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 23:08

7 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll..
,,Myndi þetta fólk mæta ef fréttamenn færðu ekki fréttir af þessum óeirðamótmælum? Er þetta ekki að nokkru leyti athyglissýki"

Ef það er að tala niður til fólks að segja að óeirðamótmæli séu athyglissýki... þá hef ég talað niður til þeirra.
Kristilegt umburðarlyndi er alls ekki að einsetja sér að umbera allt... þar á meðal óeirðir og ofbeldi...

Bryndís Svavarsdóttir, 22.11.2008 kl. 23:29

8 identicon

Það er engin að bíða eftir fjölmiðlum áður en mótmælin hefjast. Þú misskilur. Fjölmiðlarnir ljúga hvort eð er og þeim er ekki treystandi. Þeir sem eiga að sjá mótmælin er ríkisstjórnin. Og hún sér mótmælin og það ekki með hjálp fjölmiðla. Það er mergurinn málsins. Þú hefur enga trú á fólki.

Elvar Geir Sævarsson (IP-tala skráð) 22.11.2008 kl. 23:38

9 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Sæll,
Þú misskilur mig, ég er ekki að mótmæla fréttum af friðsamlegum mótmælum... einmitt er ég að benda á að þau eigi að fá athygli í fjölmiðlum en ekki óeirðaseggirnir.

Bryndís Svavarsdóttir, 23.11.2008 kl. 11:53

10 Smámynd: Rýnir

Sæl bæði,

Niðurgangur: Ég veit ekki hvort þú ert að misskilja Bryndísi eða viljandi að snúa út úr fyrir henni. Mér finnst hún nokkuð skýr í því sem hún er að segja...

Góðar kveðjur,

Rýnir, 23.11.2008 kl. 15:04

11 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Takk Rýnir...

Bryndís Svavarsdóttir, 23.11.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband