Leita í fréttum mbl.is

Gjörið iðrun - takið sinnaskiptum

Matt 4:17
Upp frá þessu tekur Jesús að prédika og segja: Gjörið iðrun, himnaríki er í nánd.

Síðasta útgáfa Biblíunnar, þ.e. frá 1981, þýddi ,,gjörið iðrun" en ný útgáfa Biblíunnar þýðir ,,takið sinnaskiptum". 
Nýja þýðingin er réttari því gríska orðið metanoeo merkir að skipta um hugarfar eða tilgang... nákvæmlega það sem Jesús vildi. Gyðingar ríghéldu í erfikenningar sínar, heiðingjar héldu í steinguði sína og heimspekingar trúðu á speki og þekkingu...

Matt 4:18
Hann [Jesús] gekk með Galíleuvatni og sá tvo bræður, Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés, bróður hans, vera að kasta neti í vatnið, en þeir voru fiskimenn.
Matt 4:19
Hann sagði við þá: Komið og fylgið mér, og mun ég láta yður menn veiða.

Gyðingar áttu að hætta að hugsa einungis um eigin frelsun - þeir áttu menn að veiða. Orð Guðs er fyrir alla. Jesús prédikaði í kærleika, án þess að þræta um þær kenningar sem menn aðhylltust... en sagði takið sinnaskiptum, opnið augun fyrir því sem skiptir raunverulega máli.

Himnaríki er í nánd - Enginn breytir neinu eftir dauðann, valið er á þessari jörð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Birgirsm

Sæl Bryndís

Ég er nokkuð viss um það að svartsýnin og vonleysi það sem hrjáir Íslendinga um þessar mundir, fái ófáa til þess að "taka sinnaskiptum" þá meina ég það að það er svo oft eins og fólk þurfi að lenda í andstreymi og kannski áföllum til þess  (eins og þú segir) að opna augun fyrir því sem raunverulega skiptir máli.

Takk fyrir mjög svo góðar færslur

Birgirsm, 3.10.2008 kl. 19:18

2 Smámynd: Bryndís Svavarsdóttir

Takk fyrir hvatninguna Boli minn 

Bryndís Svavarsdóttir, 3.10.2008 kl. 19:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Svavarsdóttir
Bryndís Svavarsdóttir

alltaf að mála, þó ekki skrattann á vegginn.

Gaflari í húð og hár.
Gift, 4 börn, 8 barnabörn og 3 langömmubörn :)
Cand Theol í guðfræðideild HÍ.
Prestur..
vanræki áhugamálin


Aðaláhugamál:
Skemmtiskokkari:
Fjallgöngur,
Olíumálun,
Ferðalög.

Netfang:
bryndissvavars@gmail.com  Hlaupasíðan mín:
byltur.blog.is

Hef ekki enn tekið ákvörðun um að safna bloggvinum á lista hjá mér.

Eldri færslur

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband